Hafið heillar - Drawn To The Sea
Hafið bláa - Helga Gunnlaugsdóttir
Nánast alla mína ævi hef ég búið á Akureyri, höfuðstað Norðurlands. Oft venst maður því sem ber fyrir augu alla daga. Til dæmis er það að búa við sjóinn eitt af því sem margir jarðarbúar fá ekki að upplifa en í mínum huga hefur sjórinn bara verið þarna misjafnlega blár og sléttur eða grár og úfinn. En sjórinn hefur heillað mig meira undanfarið. Hann hefur ekkert breyst, en eftir að maðurinn minn eignaðist hlut í bát og fór að bjóða mér í siglingu, þá horfi ég öðrum augum á hafið. Sérstaklega þegar veröldin skartar sínu fegursta, himininn er heiður og hafið blátt og lygnt. Það að horfa á uppáhaldsfjallið mitt Kaldbak á sjónum er einstakt. - Og ég sem var á móti því að kaupa hlut í bát. |
The Blue Sea - Helga Gunnlaugsdóttir
Nearly all my life I have lived in Akureyri, the capital of northern Iceland. One often gets used to the things one sees every day. For example living by the sea is something that not everyone experiences but to me the sea has just always been out there, sometimes blue and calm and sometimes grey and rough. But lately it has become more appealing to me. It hasn´t changed at all but since my husband bought a share in a boat and started to take me sailing I look at the ocean in a new light. Especially when the world is in bloom, skies are clear and the sea is blue and calm. The view to my favorite mountain, "Kaldbakur" from the sea is extraordinary. And to think I used to be against my husband buying a share in a boat. |