Sólarupprás / Sólarlag - Sunrise / Sunset
Ástfangin í sólsetrinu - Helga Haraldsdóttir
Nálægt heimili mínu eru klappir með gríðarlega fallegu útsýni út Eyjafjörð þar sem uppáhalds fjallið mitt Kaldbakur trónir í öllu sínu veldi. Ég er næturgöltrari og fer oft út á klappir eftir miðnættið til að mynda þegar sólsetrið er fallegt. Ég var svo heppin þetta kvöld að hitta þetta ástfangna par sem kysstist í rómantískri birtunni. |
In love in the sunset - Helga Haraldsdóttir
Close to my home, there is a small hill with a beautiful view of Eyjafjörður, where my favorite mountain Kaldbakur reigns in all its glory. I‘m a night owl, and during the summer I often walk out to the hill after midnight, when the sunset is stunning, to take photographs. This evening, I was so lucky to meet this loving couple, who kissed in the romantic light. |