Drawn To The Sea - Hafið heillar
Joppa Rocks - Susanna Kinghorn
The low tide exposes a singing chorus of crackling molluscs that cling to the carboniferous rocks. A walk out here on a still morning brings grounding feelings of calmness and connectedness. The wilder weather inspires feelings of excitement and passion as you witness the fierce energy of the waves crashing against the rocks. Whatever the weather, this unstoppable force of nature induces sublime emotion as it grabs your senses and draws you on a journey to the sea. |
Joppa klettarnir - Susanna Kinghorn
Þegar fjarar út má heyra óminn af brakandi skeldýrum sem sitja föst í kalksteinsklettunum. Í gönguferð á kyrrlátum morgni færist yfir ró og maður finnur fyrir tengingu við náttúruna. Hryssingslegra veður kallar fram spennu og vekur upp frumeðli mannskepnunnar sem varnarlaus horfir á kraftmiklar öldurnar lemjast við klettana. Þetta óstöðvandi náttúruafl heltekur öll skilningarvit, kveikir langanir og lokkar þig á haf út. |