Looking Out - Horft út
Do Whatever Makes Your Heart Smile - Jennifer Elliot
It was the light in the jasmine plant leaves that caught my eye while making dinner for the family but this window gives me a lot of pleasure. I’ve gathered friends and family there. The purple plant was a gift from my French mum, the paper flower was made by my mum and daughter a few years back, the jasmine is a survival story, the glass jars a wedding gift from the Danish friend who introduced my husband and me, an Ocean Fire pot, the candles and other plants were gifts, the paint brushes drying - a result of my lockdown DIY frenzy, the crabs and scallop shell gathered by my son, my wedding rings on the window ledge and all looking out to our own birch tree and wee walled garden. Life accumulated. |
Gerðu það sem fær hjarta þitt til að brosa - Jennifer Elliot
Það var birtan í laufum jasmínublómsins sem vakti athygli mína þegar ég var að elda kvöldmatinn fyrir fjölskylduna en allt það sem þessi gluggi geymir, vekur mér mikla ánægju. Ég hef safnað saman vinum og fjölskyldu í hann. Fjólubláa blómið var gjöf frá franskættaðri móður minni, pappírsblómið unnið af mömmu og dóttur minni fyrir nokkrum árum. Ég bjargaði jasmínublóminu, glerkrukkan var brúðargjöf frá dönskum vini sem kynnti okkur hjónin, kertastjakinn, kertin og hin blómin eru gjafir, penslar að þorna - ummerki um málningarvinnu sem ég hellti mér útí í samkomubanninu, krabbar og hörpuskeljar sem sonur minn fann, giftingarhringarnir mínir í gluggasyllunni og fyrir utan gluggann má sjá birkitréð okkar og lítinn afgirtan garð. Lífið í hnotskurn. |